Láttu gögnin þín ná sem lengst
Birtu myndritin þín á öðrum vefsíðum
Myndritin sem þú hefur smíðar á DataMarket er hægt að fella inn í vefinn þinn, bloggið og fréttirnar. Litasamsetningu myndritanna er hægt að stilla svo þau falli vel að vefnum þínum og vörumerki.
Byggðu mælaborð
Búðu til stað á vefnum þínum þar sem lesendur þínir fá nýjustu upplýsingar hverju sinni með því að nota mælaborð frá DataMarket. Þú sleppur við að viðhalda myndritunum handvirkt, því DataMarket sér um að uppfæra myndritin sjálfkrafa með nýjustu gögnum.
Þinn eigin gagnamarkaður
Með Enterprise áskrift gefst þér færi á að að setja upp þinn eigin gagnamarkað byggðan á sömu tækni og DataMarket.com. Með í pakkanum er afgreiðslukerfi og aðgangur að tækni til að uppfæra og birta gögnin þín. Þú getur samþætt lausnina við eigin vefsíðu og aðlagað útlitið að eigin vörumerki.
Aðgangur gegnum R
DataMarket býður upp á að nálgast gögnin í gegnum R tölfræðihugbúnaðinn.
Fullur aðgangur gegnum API
Hannaðu og smíðaðu eigin veflausnir til að tengjast DataMarket í gegnum forritunarviðmót sem byggir á REST hugmyndafræðinni. Hægt er að notast við JSON, CSV eða XML sem gagnasnið.
