Fyrir gagnaveitur

Við vinnum með allmörgum gagnaveitum með ólíkar þarfir:

  • Opinberum stofnunum
  • Seljendum gagna, s.s. markaðsrannsóknafyrirtækjum, greiningaraðilum og kauphöllum.
  • Fyrirtækjum sem vilja gera sín gögn aðgengilegari fyrir viðskiptavini, samstarfsaðila eða almenning.

Lausnirnar sem DataMarket býður þessum gagnaveitum skiptast í tvo flokka: Birting og sala gagna til sívaxandi notendahóps DataMarket.com og veflausn sem gerir eigendum gagna kleift að birta eða selja gögn í eigin nafni.

Þitt eigið gagnatorg

Ef þú vilt birta og/eða selja gögn undir eigin merkjum á þinni eigin vefsíðu, bjóðum við upp á heildarlausn í því samhengi: Hýsta veflausn sem hægt er að aðlaga algerlega að þínum þörfum.

Meðal vefja sem byggja á lausnum DataMarket eru:

  • Gagnatorg Capacent (væntanlegt)
  • Gagnatorg veðurupplýsinga: Hefur að geyma veðurmælingagögn frá Veðurstofu Íslands og fleiri aðilum, allt aftur til 1931.

Uppsetning gagnatorgs getur tekið allt frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur allt eftir þörfum hvers og eins, gagnamagni og verkefnastöðu hjá DataMarket. Ef þú hefur áhuga á að kynna þér möguleikana, sendu þá línu á sales@datamarket.net með stuttri lýsingu á því hvað þú hefur í huga.

Birting og sala gagna á DataMarket.com

Í gegnum DataMarket.com nærð þú til nokkur þúsund áhugasamra notenda í leit að gögnum. Hvort sem þú vilt birta gögn þín án endurgjalds eða selja þau, er DataMarket ákjósanlegur kostur. Þú skráir gögnin, ákveður notkunarskilmálana og við sjáum um afganginn.

Ef þú hefur áhuga á að bjóða þín gögn á DataMarket.com, vinsamlega fylltu þá út formið hér að neðan. Ritstjóri okkar mun hafa samband við þig innan tveggja virkra daga.

Upplýsingar útgefanda

Samskiptaupplýsingar