Notkunarskilmálar
Vinsamlega lesið vandlega eftirfarandi notkunarskilmála (hér eftir “Skilmálar”) fyrir DataMarket.com þjónustuna (hér eftir “Þjónusta”). Með því að nota þessa Þjónustu samþykkir þú efni þessara Skilmála.
DataMarket áskilur sér rétt til að breyta þessum Skilmálum í framtíðinni ef þörf krefur. Með því að halda áfram notkun Þjónustunnar samþykkir þú Skilmálana ásamt breytingum. Við munum kynna allar slíkar breytingar tímanlega og vekja athygli á þeim á forsíðu DataMarket.com.
Um DataMarket.com þjónustuna
DataMarket.com þjónustan felur í sér miðlægan aðgang að ýmiskonar gögnum og margvíslega möguleika til að vinna með þessi gögn
Verndun persónuupplýsinga
DataMarket.com vistar persónutengdar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita umrædda þjónustu. Við hvetjum þig til að lesa yfirlýsingu DataMarket um meðferð persónuupplýsinga.
Afnot af Þjónustunni
Þér er velkomið að nota Þjónustuna, til þinna einka- eða atvinnunota, en þú mátt ekki leyfa öðrum að nota þinn aðgang að Þjónustunni.
Við áskiljum okkur rétt til að loka tímabundið eða endanlega fyrir Þjónustuna hvenær sem er, af kerfisástæðum, lagaástæðum eða öðrum ástæðum.
Við áskiljum okkur rétt til að neita þér um aðgang að Þjónustunni ef þú gerist brotlegur við Skilmála þessa.
Hugverkaréttur
Allur réttur að DataMarket.com Þjónustunni er áskilinn DataMarket ehf. Höfundarréttur að efninu sem birtist í Þjónustunni er upprunalegra leyfishafa og á koma skýrt fram hvar sem efnið birtist. Vörumerki tilheyra skráðum eigendum.
Þú samþykkir að hvorki gera óleyfileg afrit, niðurhala, breyta, leigja, lána, selja, dreifa eða framleiða nokkuð efni sem byggir á Þjónustu þessari í hluta eða heild án skýrrar heimildar til þess.
Þriðju aðilar
Þjónusta þessi felur í sér upplýsingar og tengla í aðra vefi eða gagnalindir. Þú fellst á að að DataMarket getur ekki borið ábyrgð á aðgangi að ytri síðum eða gagnalindum. DataMarket getur ekki borið ábyrgð á efni, upplýsingum, auglýsingum, vörum, þjónustu eða öðru sem finna má með aðstoð DataMarket.com hjá þriðja aðila.
Viðskipti eða samskipti þín við þriðja aðila sem rekja má til þessarar Þjónustu eru alfarið mál þitt og þriðja aðila nema annað sé skýrt tekið fram. DataMarket ehf. ber ekki ábyrgð á neinu tjóni eða tapi sem leitt getur af slíkum viðskiptum.
Takmörkun ábyrgðar
Notkun þín á Þjónustunni er á þína ábyrgð. Þjónustan er veitt eins og hún er hverju sinni og aðeins þegar hún er til taks. Við getum ekki ábyrgst að Þjónustan uppfylli þínar kröfur eða henti því verkefni sem þú ætlar henni.
Allt Efni sem er í þessari Þjónustu getur breyst fyrivaralaust. Við leggjum okkur fram um að viðhalda Þjónustunni og ástundum vönduð vinnubrögð í rekstri hennar. En við getum ekki tekið ábyrgð á að Þjónustan sé ávallt í lagi.
Við berum enga ábyrgð á tjóni af nokkru tagi sem hlotist getur af notkun Þjónustunnar eða Efnis sem finna má í henni eða með henni.
Almennt
Þessir Skilmálar eru eina samkomulagið milli þín og okkar hvað varðar notkun Þjónustunnar.
Skilmálar þessir og samband okkar við þig fellur undir Íslensk lög og Íslenskir dómstólar skulu úrskurða ef upp kemur einhver ágreiningur.
Senda má póst á datamarket@datamarket.com til að koma á framfæri ábendingum eða spurningum vegna Skilmála þessara.
