Þjónusta
DataMarket býður upp á ýmsa gagnatengda þjónustu í verkefnavinnu. Meðal algengra verkefna eru öflun gagna úr ólíkum áttum, samræming gagna og uppsetning myndrænna gagna fyrir vef eða prent.
Gagnaöflun
DataMarket er með yfir 2.000 gagnaveitur á skrá. Með hjálp þeirra, geta sérfræðingar okkar fundið nánast hvaða gögn sem er. Ef þau eru til, finnum við þau.
Láttu sérfræðingateymi DataMarket sjá um þína gagnaöflun og sparaðu þér tíma, hausverk og peninga.
Af hverju ættir þú að eyða klukkustundum eða dögum í að leita að, safna og undirbúa gögn til notkunar þegar DataMarket getur séð um alla þessa þætti fyrir þig? DataMarket er með þúsundir gagnaveitenda á skrá, sérhæfingu í að afla gagna og notkunarleyfa og auk einskærrar ástríðu fyrir gögnum almennt.
Tengingar við sértæk gögn
Gögn sem eru tengd DataMarket.com verða samstundis verðmætari þar sem hægt er að bera þau saman við önnur gögn, leita í þeim, og teikna upp myndrit á augabragði.
DataMarket getur tengt hvaða gögn sem er og gert þau aðgengileg notendum eða takmörkuðum hópi notenda. Hafðu samband við sales@datamarket.net til að fá frekari upplýsingar um þessa möguleika.
Ef þú hefur ekki tök á að borga fyrir tengingu gagna við DataMarket.com, viljum við samt sem áður heyra óskir þínar, enda tökum við tillit til þeirra við forgangsröðun nýrra gagnatenginga. Endilega sendu ritstjóranum línu og segðu okkur hverju þú ert að leita að.
