Meðferð persónuupplýsinga
Notendaupplýsingar
Við notkun á DataMarket.com biðjum við þig um að gefa upp ákveðnar persónugreinanlegar upplýsingar sem hægt er að nota til að hafa samband við þig, auðkenna þig við notkun vefsins og hafa umsjón með notendaaðgangi þínum ("Persónuupplýsingar"). Meðal persónuupplýsinganna eru: skráningarupplýsingar s.s. nafn þitt, notendanafn og lykilorð; tengiliðaupplýsingar s.s. netfang, heimilisfang og símanúmer; og viðskiptamannaupplýsingar s.s. upplýsingar um greiðslukort.
Við notum Persónuupplýsingarnar til að veita þá þjónustu sem í boði er á DataMarket.com og svara fyrirspurnum þínum. Skráningarupplýsingar eru notaðar til auðkenningar, tengiliðaupplýsingar til að senda þér upplýsingar um um DataMarket og viðskiptamannaupplýsingarnar til að innheimta gjald fyrir þjónustuna. Tengiliðaupplýsingarnar kunna einnig að vera notaðar til að senda þér fréttabréf DataMarket, markaðs- og kynningarefni eða aðrar upplýsingar um DataMarket sem þér kunna að þykja áhugaverðar. Frekari upplýsingar um netfangalista okkar er að finna hér að neðan.
Vinsamlega athugið að aðrir notendur kunna að sjá notendanafn þitt, athugasemdir og annað sem þú kannt að senda inn á síðuna.
Notkun upplýsinga sem safnað er á vefsíðunni
DataMarket kann að nota upplýsingar sem safnað er á vefsíðunni til að aðlaga útlit eða efni einstakra vefsíðna eða innihald fréttabréfs og annarra tölvupóstsendinga. Netföng á netfangalistum kunna að vera notuð til að senda upplýsingar um nýjungar eða breytingar hjá DataMarket, senda fréttabréf okkar og aðrar tilkynningar. Öllum slíkum sendingum er þó stillt í hóf. Upplýsingunum sem við söfnum er ekki deilt með öðrum fyrirtækjum, stofnunum eða einstaklingum nema þú hafir gefið leyfi þitt sérstaklega fyrir slíku.
Netfangalisti vegna fréttabréfs og tilkynninga
Utanumhald netfangalista DataMarket er hjá fyrirtækinu Campaign Monitor. Til að tilkynna misnotkun eða brot á þessari yfirlýsingu, vinsamlegast sendu tölvupóst á netfangið datamarket@datamarket.net og láttu afrit af umræddum pósti fylgja ásamt öðrum upplýsingum sem kynnu að hjálpa til við að rekja uppruna sendingarinnar.
Einu upplýsingarnar sem vistaðar eru um áskrifendur að póstlistum DataMarket eru þær upplýsingar sem notandi gefur sjálfur upp á viðkomandi vefformi. Vefþjónninn kann að vista aðrar upplýsingar, s.s. IP tölu gesta. Ef annað er ekki tekið fram sérstaklega, safnar DataMarket einnig netföngum þeirra sem eiga í samskiptum við fyrirtækið með tölvupósti.
Ef þú skráðir þig fyrir fréttabréfi eða tilkynningum frá DataMarket, en vilt fjarlægja netfang þitt af viðtakendalistanum skaltu fylgja leiðbeiningunum sem fram koma í tölvupóstinum um afskráningu. Þú getur líka sent tölvupóst á datamarket@datamarket.net hvenær sem er og beðið um afskráningu af listanum.
Almennt
Í tilfelli samruna DataMarket við annað félag, eða kaup annars félags á starfsemi DataMarket munu þær upplýsingar sem hér um ræðir fylgja með í þeim gjörningi.
Að beiðni þinni mun DataMarket senda þér yfirlit yfir þær upplýsingar sem fyrirtækið hefur á skrá um þig.
