Fólkið

Stjórnendur
Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri
Hjálmar er óseðjandi áhugamaður um tölvur og tækni. DataMarket er fjórða hugbúnaðarfyrirtækið sem hann setur á fót. Fyrri fyrirtæki hafa verið á sviði leitartækni, farsímahugbúnaðar og smáleikja. Áður en hann stofnaði DataMarket, starfaði Hjálmar sem forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Símanum. Hjálmar er einnig tæknilegur ráðgjafi Já - upplýsingaveitna við þróun og rekstur símaskrárvefjarins Já.is.
hjalmar.gislason@datamarket.com
Gunnlaugur Briem, tæknistjóri
Gunnlaugur hefur hannað og smíðað hugbúnað síðan árið 1996, hjá Dímon hugbúnaðarhúsi, Landsbankanum, og nokkrum öðrum fyrirtækjum. Hann er með meistaragráðu í rafmagnsverkfræði frá Stanford University, kennir námskeið í því fagi við Háskóla Íslands, og hefur hlotið verðlaun fyrir kennslu við báða skóla. Gunnlaugur leggur fyrirtækinu til víðtæka tæknikunnáttu auk færni og eldmóðs við að leiðbeina öðrum og hvetja.
gunnlaugur.briem@datamarket.com
Aðrir lykilstarfsmenn
Agnar Jón Ágústsson, sölu- og markaðsmál
agnar@datamarket.com
Borgar Þorsteinsson, viðmótsforritari
borgar.thorsteinsson@datamarket.com
Kári Gunnarsson, ritstjóri gagna
kari.gunnarsson@datamarket.com
Matt Riggott, forritari
matt.riggott@datamarket.com
Viðar Másson, forritari
vidar.masson@datamarket.com
Þorlákur Lúðvíksson, sérfræðingur í myndrænni gagnaframsetningu
thorlakur.ludviksson@datamarket.com
Þorsteinn Yngvi Guðmundsson, rekstrarstjóri
thorsteinn.yngvi.gudmundsson@datamarket.com
Lausar stöður og okkar sýn
Við trúum á lítil, sveigjanleg teymi framúrskarandi hæfileikafólks. Við viljum að vinnan okkar sé bæði krefjandi og skemmtileg - og geri heiminn jafnframt aðeins betri.
Við erum að leita að starfsmanni í eina stöðu á Íslandi:
- Server-side forritari: Server-side forritarinn mun vinna að virkilega krefjandi þróun og hönnun virkilega krefjandi gagnagrunnskerfa. Djúp þekking á SQL og yfirgripsmikil þekking á þróun stórra og afkastamikilla gagnagrunnskerfa er nauðsynleg. Viðvörun: Þetta starf er ekki fyrir neina aukvisa!
