Ný myndrit, ný gögn, nýr fjárfestir og ... kindur?!
Kæri áhugamaður um DataMarket,Vissir þú...
- ...að það eru fleiri kindur en menn í að minnsta kosti 9 löndum í heiminum?
- ...að það er golfvöllur steinsnar frá heitasta stað jarðar?
- ...að DataMarket bætti nýlega í safn sitt 2.000 nýjum gagnasettum um bandarískan efnahag?
Núna veistu það!
Fleira sem við höfum verið að fást við:
Ný myndrit = fleiri leiðir til að skoða gögnin okkar
|
Síðustu mánuði höfum við smám saman verið að bæta nýjum gerðum myndrita við möguleikana sem DataMarket hefur upp á að bjóða: svæðarit, margskyns stöpla- og bjálkarit, töflubirting og fleira. Mismunandi myndrit gefa þér mismunandi sjónarhorn á gögnin og gera þér kleift að draga fram ólíka hluti. Endilega prófið þetta. |
Gagnamiðlunarlausnir DataMarket vekja athygli
|
Í fréttabréfinu okkar í maí minntumst við á þær lausnir sem við bjóðum gagnaeigendum upp á. Hingað til hafa flest rannsóknarfyrirtæki og aðrir gagnaeigendur skilað sínum gögnum á formi Excel-skjala, PowerPoint-glærukynninga og PDF-skjala. Gagnabirtingakerfi DataMarket býður þess í stað upp á möguleika til gagnvirkrar birtingar í einföldu og sveigjanlegu vefkerfi. Fyrirtæki geta þannig gert gögnin sín aðgengileg, hvort sem er gegn gjaldi eða ekki á DataMarket.com, eða undir eigin merkjum á eigin vef í gegnum séraðlagaða uppsetningu af DataMarket-kerfinu. Við höfum orðið vör við mikinn áhuga á þessum lausnum. Sá áhugi hefur verið frá aðilum allt frá sjálfstætt starfandi greiningaraðilum til stórra rannsóknar-, fjármála- og fjölmiðlafyrirtækja. Meðal fyrstu viðskiptavinanna til að taka kerfið í notkun verður Seðlabanki Íslands, en þeir munu - samhliða uppsetningu á nýjum vef - skipta núverandi gagnamiðlun (á formi Excel-skjala) út fyrir myndræna og gagnvirka birtingu í gegnum kerfi DataMarket. |
Fjárlagafrumvarpið í "hefðbundinni" framsetningu DataMarket
|
Undanfarin 3 ár höfum við staðið fyrir því að gera fjárlagafrumvarp komandi árs aðgengilegt með heldur einfaldari og þægilegari hætti en Fjármálaráðuneytið og Alþingi standa fyrir í sinni útgáfu. Fjárlagafrumvarpið 2012 er engin undantekning og fyrir þá sem vilja skilja í hvað skattpeningunum okkar er varið, hvar er verið að auka útgjöld, hvar er skorið niður og svo framvegis er tilvalið að kíkja á þessa gagnvirku framsetningu. Í þetta sinn gerðum við reyndar enn betur og á Gagnatorginu sem við rekum ásamt Capacent má nú nálgast gögnin í almennu viðmóti DataMarket. Þar má t.d. bera saman liði milli ráðuneyta, safna upp og leggja saman útgjöld til mismunandi málaflokka og í raun draga upp myndir og sækja gögnin að baki öllu því sem Ríkið ætlar sér að gera á næsta ári. |
Frumtak fjárfestir í DataMarket fyrir 140 m.kr. - vilt þú slást í hópinn?
|
Fyrir nokkrum vikum festi fjárfestingarsjóðurinn Frumtak kaup á hlut í DataMarket fyrir 140 m.kr. Þessi fjárfesting gerir okkur kleift að grípa almennilega þau tækifæri sem okkur standa opin. Við höfum þróað einstaka og verðmæta lausn sem birtist ykkur í DataMarket.com, Gagnatorgi Capacent og ýmsum smærri lausnum sem þegar eru í notkun hjá meira en 20 fyrirtækjum á Íslandi. Fjárfestingin er ætluð til að koma þessum lausnum á alþjóðamarkað og þessum fjármunum verður einkum varið til sölu og markaðsstarfs erlendis. Í því skyni leitum við að sölumanni til að starfa með okkur á austurströnd Bandaríkjanna. Endilega látið okkur vita ef þið hafið áhuga og hæfileika til starfsins eða þekkið einhvern sem við ættum að tala við. |
Sem fyrr getið þið fylgst með því sem við erum að fást við hjá DataMarket á Twitter, Facebook eða í gegnum bloggsíðuna okkar, en þar birtum við reglulega pælingar um það sem er að gerast í gagnaheiminum og fréttir af því sem er að gerast hjá DataMarket.
Hér eru nokkrar nýlegar færslur af blogginu:
- MSIE shim for Protovis open sourced
- Data Visualization – Where Normal People Fall In Love With Data
- The Protovis Stays
- Protovis Support For Internet Explorer 8 (And Earlier)
- Hot Or Not … For Data!
Takk fyrir áhugann á því sem við erum að fást við hjá DataMarket. Ekki hika við að setja ykkur í samband ef þið eruð með spurningar, hugmyndir eða langar að ræða einhver spennandi tækifæri,
Gagnanördarnir hjá DataMarket


