Stjórn
Frosti Sigurjónsson, stjórnarformaður: Stofnandi og framkvæmdastjóri flugleitarvélarinnar dohop.com. Reyndur stjórnandi í tæknigeiranum. MBA frá London Business School. Frosti og Hjálmar, framkvæmdastjóri DataMarket, hafa verið viðskiptafélagar um árabil.
Hilmar Gunnarsson: Virkur fjárfestir með víðtæka reynslu úr hugbúnaðar- og farsímageiranum. Leiddi áður sölustarf OZ Communications og hafði umsjón með sölu OZ til Nokia. Stjórnarmaður í teiknimyndafyrirtækinu CAOZ.
Vilhjálmur Þorsteinsson: Stjórnarformaður CCP og Verne, meðeigandi í Teton Capital og stjórnarmaður í Auði Capital. Stjórnarmaður í allmörgum félögum öðrum, þar á meðal Gogogic og Gogoyoko. Frumkvöðull í hugbúnaðar- og fjarskiptageiranum undanfarin 25 ár.
