Um DataMarket
DataMarket rekur markaðssvæði fyrir tölfræði- og töluleg gögn.
DataMarket.com
Gagnatorginu DataMarket.com var hleypt af stokkunum í maí 2010.
Á DataMarket eru tekin saman töluleg gögn frá ýmsum opinberum stofnunum og einkaaðilum og þau gerð aðgengileg á einum stað með samræmdum eiginleikum, s.s. leitarmöguleikum, samanburði, tengingum við fréttaefni og aðra viðburði, og niðurhali gagna til dæmis til notkunar í Excel.
Aðgangur að opinberum og öðrum opnum og ókeypis gögnum er öllum opinn án endurgjalds, en aðgang að gögnum einkarekinna gagnaveitna s.s. markaðsrannsóknarfyrirtækja, kauphalla og greiningaraðila er hægt að kaupa gegnt áskriftargjaldi.
Enn sem komið er innheldur DataMarket einungis gögn um Ísland, en mun færa út kvíarnar seinna á þessu ári.
Forsaga
Töluleg gögn, tölfræði og margskyns töfluupplýsingar eru órjúfanlegur hluti af fyrirtækjarekstri en samt sem áður er ótrúlega erfitt að finna og útvega góð gögn. Gagnalindir eru dreifðar, snið gagnanna eru margvísleg og samkeyrsla gagna úr fleiri en einni gagnalind getur verið mjög snúin, svo ekki sé meira sagt.
Ótal vinnustundir fara í það hjá sérfræðingum og stjórnendum um víða veröld að leita að gögnum, klippa, líma og hreinsa upp gögn, til þess eins að geta unnið með þau í Excel, í gagnagrunnum eða viðskiptagreindarforritum - oft með takmörkuðum árangri.
DataMarket var stofnað til að taka á þessum vandamálum. Við viljum breyta gagnaöflun úr því að snúast um síendurtekin og óhagkvæm verkefni í það að gagnasöfn séu markaðsvara rétt eins og hvað annað. Á sama tíma aukum við tækifærin og stækkum markaðinn fyrir eigendur og veitendur gagna.
DataMarket greinir þarfir þeirra sem leita gagna, kemur þeim í tengsl við réttu gagnaveiturnar og skilar gögnunum á því sniði og á þann máta sem best hentar hverju sinni. DataMarket sér um öll leyfis- og lögfræðiatriði og sér til þess að hvert einasta stak í gögnunum sé rekjanlegt til uppruna síns, hvort sem gagnaveitan er opinber stofnun, markaðsrannsóknafyrirtæki eða opin þjónusta sem byggir á gögnum frá netnotendum.
DataMarket ehf. er íslenskt einkahlutafélag, stofnað sumarið 2008.
Fréttabréf
Hér má finna safn af eldri fréttabréfum DataMarket.
DataMarket bloggið
Á blogginu finnurðu nýjustu fréttir af DataMarket
DataMarket á Twitter
Þú getur fylgst með því sem er að gerast hjá @DataMarket á Twitter
DataMarket á Facebook
DataMarket á líka síðu á Facebook.
