Mannfjöldaþróun á Íslandi



This browser does not have a Java Plug-in.
Get the latest Java Plug-in here.

Hér hefur söguleg dreifing mannfjölda á Íslandi eftir kynjum og aldri verið dregin saman í eina hreyfimynd. Framsetning af þessu tagi er gjarnan kölluð mannfjöldapíramídi, aldurspíramídi eða fólksfjöldapíramídi.

Framsetningin leiðir í ljós nokkra áhugaverða hluti varðandi mannfjöldaþróun Íslendinga:

  • Barnadauði: Fyrstu árin er sorglegt að sjá hvernig yngstu árgangarnir – sérstaklega sá allra yngsti – ná ekki að færast upp. Þetta segir sína sögu um barnadauða, aðbúnað barna og “heilsugæslu” þessa tíma.
  • “Baby boom”: Fram að lokum seinni heimstyrjaldarinnar vex og eldist þjóðin nokkuð jafnt og þétt. Reyndar dregur aðeins úr fæðingum framan af seinna stríði, en svo verður alger sprenging – það sem kallað er “baby boom” upp á ensku og á sér klárlega sína hliðstæðu hér. Þessi “barnasprengja” hefur verið rakin til aukinnar hagsældar, betra heilbrigðiskerfis og almennrar bjartsýni í kjölfar stríðsins. Uppúr 1960 jafnast svo stærð árganganna út aftur með tilkomu getnaðarvarna og skipulagðari barneignum en tíðkuðust fram að því.
  • Erlent vinnuafl: Á myndinni má líka sjá ákveðna sögu um uppgangssveiflu síðustu ára. Ef þið skrefið ykkur í gegnum árin frá 2005-2008 (til þess eru örvatakkarnir) má sjá greinilega aukningu í aldurshópnum á bilinu 20-50 ára, sérstaklega karla megin. Aldurshópar geta eðli málsins ekki stækkað af náttúrulegum ástæðum (enginn fæðist 25 ára) þannig að þessi aukning stafar af aðfluttum umfram brottflutta. Þarna er líklega kominn hluti þess erlenda vinnuafls sem hingað hefur leitað í góðæri og framkvæmdum síðustu ára. Árið 2009 má sjá að hluti þessarar aukningar gengur til baka og áhugavert verður að sjá hvernig myndin breytist þegar mannfjöldatölur ársins 2010 koma inn.
  • Væntanleg fjölgun eftirlaunaþega: Á myndinni sést vel að á næstu árum fara þeir sem fæddir eru í áðurnefndri sprengingu í fjölda fæðinga á eftirstríðsárunum að færast á eftirlaunaaldurinn. Á næstu 15-20 árum mun eftirlaunaþegum snarfjölga. Þetta mun að líkindum hafa ýmsar samfélagsbreytingar í för með sér, s.s. auknar útgreiðslur úr lífeyrissjóðum, aukna þörf fyrir rými á öldrunar- og sjúkraheimilum, og fleira.
Þú finnur margvísleg gögn um mannfjölda í gagnasafninu hér á DataMarket.