Mannfjöldaþróun á Íslandi



Bookmark and Share

Þetta er dæmi úr galleríi DataMarket.

Myndbandið sýnir byggðaþróun og þróun búsetu á Íslandi frá 1901 til 2009. Hver hringur á kortinu táknar eitt sveitarfélag og stærð hans (nánar tiltekið flatarmál) fólksfjöldann. Þar sem sveitarfélög hafa bæði sundrast og sameinast á þessum tíma, segir vídeóið einnig nokkra sögu um þá þróun, ekki síst undir það síðasta, en miklar sameiningar hafa átt sér stað síðasta rúma áratuginn.

Að túlka íbúafjölda sveitarfélags í einum punkti er auðvitað aldrei yfir vafa hafið og sýnir ekki fínni atriði þessarar sögu s.s. hvaðan fólk flutti hvert, fækkun íbúa til sveita og flutning úr dreifbýli í þéttbýli utan höfuðborgarsvæðisins. Stefnt er á að afla seinna gagna sem geri kleift að útbúa síðar annað vídeó sem segi sýni eiginlega búsetuþróun miklu nákvæmar og betur, en það bíður betri tíma.

Mannfjöldagögnin sem myndbandið byggir á eru fengin frá Hagstofu Íslands, staðsetningar sveitafélaga eru fengnar frá Geonames og kortið frá Samsýn. Gísli Sverrisson aðstoðaði við landfræðilega útreikninga.

Nánari upplýsingar um vinnslu myndbandsins má finna í færslu á bloggi DataMarket (en).