Jarðskjálftar og eldgos í Eyjafjallajökli 2010



Bookmark and Share

Þetta er dæmi um gagnagræju sem útbúin er af DataMarket.

Myndbandið sýnir jarðskjálftahrinuna í Eyjafjallajökli í aðdraganda eldgosanna á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli í mars og apríl 2010. Hver hringur á kortinu táknar einn jarðskjálfta. Stærð hringjanna táknar styrk skjálftans. Dökkir litir tákna djúpa skjálfta, en bjartir litir grunna. Hringirnir dofna svo smám saman eftir því sem lengra er liðiðð frá skjálftanum.

Jarðskjáftagögnin sem myndbandið byggir á eru fengin frá Veðurstofu Íslands og kortið frá Samsýn. Gísli Sverrisson aðstoðaði við landfræðilega útreikninga.